Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gengið frá samningi við DNB Carnegie Investment Bank AB (“DNB Carnegie”) um viðskiptavakt með bréf félagsins á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Sænsk heimildarskírteini (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa í Alvotech, hafa verið tekin til viðskipta á markaðnum í Stokkhólmi. Samkvæmt samningnum gefur DNB Carnegie daglega út virk kaup og sölutilboð á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi, fyrir heimildarskírteinin í Alvotech, í samræmi við reglur kauphallarinnar. Markmið þjónustunnar er að tryggja meiri veltu og draga úr bili milli kaup- og sölutilboða. Þjónusta DNB Carnegie verður virk frá og með morgundeginum, 20. maí nk. Um Alvotech Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea). Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, fjárfestasíðu, og almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið Benedikt Stefánsson, forstöðumaður [email protected]
Alvotech semur við fjárfestingabankann DNB Carnegie um viðskiptavakt á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi
You are reading a free article with opinions that may differ from the recommendation given by Kalkine in its paid research reports. Become a Kalkine member today to get access to our research reports, in-depth technical and fundamental research. Learn more
Start Your Free Trial Now!Download Free Report – Explore 3 Stock Ideas & Industry Insights
Unlock 3 stock ideas and key industry insights in our free report. This information is general in nature and does not consider your personal objectives, financial situation, or needs. It is not financial advice.
All investments involve risk—consider independent advice before making any investment decisions.
View 3 Research ReportsThis information, including any data, is sourced from Unicorn Data Services SAS, trading as EOD Historical Data (“EODHD”) on ‘as is’ basis, using their API. The information and data provided on this page, as well as via the API, are not guaranteed to be real-time or accurate. In some cases, the data may include analyst ratings or recommendations sourced through the EODHD API, which are intended solely for general informational purposes.
This information does not consider your personal objectives, financial situation, or needs. Kalkine does not assume any responsibility for any trading losses you might incur as a result of using this information, data, or any analyst rating or recommendation provided. Kalkine will not accept any liability for any loss or damage resulting from reliance on the information, including but not limited to data, quotes, charts, analyst ratings, recommendations, and buy/sell signals sourced via the API.
Please be fully informed about the risks and costs associated with trading in the financial markets, as it is one of the riskiest forms of investment. Kalkine does not provide any warranties regarding the information on this page, including, without limitation, warranties of merchantability or fitness for a particular purpose or use.
Please wait processing your request...